
VÍDD
Flísahellur
Fyrir svalir, þakverandir og garða
20 MM FLÍSAHELLUR
Falleg og endingargóð lausn fyrir útisvæði
Flísahellur sameina kosti flísa og garðhellna, en eru lausar við mörg vandamál sem fylgt hafa hefðbundnum útilögnum. Þær er hægt að leggja á svalir, þakverandir og í garða.
Vídd býður flísahellur aðallega frá framleiðendunum Atlas Concorde og Mirage. Flísahellurnar eru með R11 anti-slip hálkustuðli og þola íslenskar aðstæður. Flísahellur koma í stærðum 60x60, 45x90, 80x80, 90x90, 60x120 og 120x120. Parketviðarútlit í 20x120 og 30x120 cm.

20 MM FLÍSAHELLUR
Skoðaðu úrvalið
Veldu lit og stærð á vörusíðunni.

Framlengdu heimilið út í garð
Flísahellur skapa sterkt og fágað yfirborð sem hentar íslenskum aðstæðum og gefur útisvæðinu fallegt, heildstætt yfirbragð.

Nýtt yfirbragð án óþarfa flækjustigs
Flísahellur eru sérstaklega hentugar á svalir og þakverandir þar sem útlit, ending og auðvelt viðhald skipta máli.




HUGMYNDIR & UPPLÝSINGAR
Skoðaðu flísahellubæklinginn
Í bæklingnum má finna hugmyndir, útfærslur og upplýsingar um flísahellur fyrir mismunandi útisvæði.
SKOÐA BÆKLING





































